Samkomulag vegna Húsó
- Dóra Jó
- 1 day ago
- 3 min read
Þann 17. apríl síðastliðinn náði ég loks samkomulagi við Glassriver vegna sjónvarpsseríunnar Húsó, sem byggði á minni eigin reynslu.
Greiðsla hefur farið fram, en eftir að lögfræðikostnaður síðustu þriggja ára vegna málsins hefur verið gerður upp stendur nánast ekkert eftir.
Það var svo ekki fyrr en í gær sem ég fékk loks staðfestingu á því að eftirfarandi kredit hafa verið sett í leiðréttingarferli á þeim stöðum þar sem það skiptir mig máli faglega:
„Creator“ á alla þætti „Story by“ á alla þætti „Written by“ á 1. þátt undir dulnefninu Hekla Hólm „Executive Producer“
Þetta eru sömu kredit og ég bað um áður en þættirnir voru frumsýndir 1. janúar 2024, en fékk ekki.
Samkomulagið jafngildir ekki sátt, en það setur mikilvægan lokapunkt eftir langan og erfiðan kafla. Það sem skiptir mig mestu máli er að ég get loks sett þetta mál að baki og þarf ekki að fara í langt og íþyngjandi dómsmál. Þá skrifaði ég ekki undir trúnaðarákvæði sem hamlar tjáningarfrelsi mínu umfram það sem eðlilegt getur talist.
Ég hef lært mikið af þessari reynslu, en það er skýrt fyrir mér að ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist. Ég var í sjúkraleyfi þegar tökum var flýtt án minnar vitundar. Fram að því hafði enginn ágreiningur komið upp, en samt var lokað á aðkomu mína að seríunni sem höfundar og leikstjóra án samtals.
Þetta mál hefur valdið mér gífurlegu álagi síðustu þrjú árin og það er alls ekki sjálfsagt að ég hafi komist heil í gegnum það.
Til að reyna að fá réttindi mín viðurkennd skrifaði ég mörg hundruð tölvupósta, sem fæstum var svarað, ritgerðir, greinar og meira að segja heila bók. Það ætti enginn að þurfa að eyða árum, heilsu, fjármunum og ómældri orku í að fá grundvallarréttindi sín virt.
Ég er stolt af því að hafa staðið með mér alla leið. Vonandi getur þessi reynsla, sem ég óska engum að upplifa, einhvern tímann orðið til góðs. Ef kvikmyndabransinn á að verða heilbrigður og öruggur vinnustaður þarf mikið að breytast.
Frá því að samkomulag náðist hef ég upplifað gífurlega þreytu, enda löng barátta að baki. Ég hlakka til að takast á við uppbyggilegri og skemmtilegri verkefni þegar ég hef safnað orku.
Ég verð ævinlega þakklát þeim sem voru til staðar og sýndu stuðning.
Það er ólýsanlegur léttir að þessu sé loksins lokið.
Húsó varð þannig á vissan hátt sú batasaga sem ég lagði upp með að segja.
Uppfærsla vegna tilnefninga Nordic Series Script Award Það er vægast sagt óvenjuleg staða að vera skráð sem tilnefndur handritshöfundur meira en ári eftir að verðlaunaafhending fór fram.
Þegar tilnefningar til Nordic Series Script Award voru fyrst kynntar í janúar 2025 var beiðni lögmanns míns um að nafni mínu yrði bætt við lista yfir tilnefnda höfunda, og að mér yrði boðið á hátíðina, hafnað.
Nú, rúmu ári síðar, hafa opinberar síður Nordisk Film & TV Fund, Göteborg Film Festival og IMDb verið uppfærðar og nafni mínu hefur verið bætt við lista yfir tilnefnda höfunda.
Umfjallanir fjölmiðla um samkomulagið:
DV: Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“
Mannlíf: Dóra náði samkomulagi við Glassriver eftir þriggja ára baráttu
Vísir: Dóra og Glassriver náðu samkomulagi
Hér má finna fleiri greinar sem ég hef skrifað um málið og kvikmyndabransann.

