Kredit Húsó uppfærð tveimur árum eftir frumsýningu
- Dóra Jó

- Mar 6
- 1 min read
Í byrjun febrúar var Húsó sett aftur á RÚV með uppfærðum kreditlista. Þar fékk ég í fyrsta sinn credit sem „created by“, „story by“, „written by“ og „executive producer“.
Í kjölfarið uppfærði Nordisk Film & TV Fond sínar síður og bætti við nafni mínu og dulnefni sem tilnefndum höfundi til Nordisk Series Script Awards, sem voru afhent fyrir ári síðan.

Uppfærslurnar voru gerðar án dómsúrskurðar eða sáttarsamnings, eftir þriggja ára þungbært ferli þar sem ég hef staðið vörð um lögbundinn höfundarrétt minn. Þetta er mikilvægt skref, þótt núverandi kreditlisti endurspegli enn ekki framlag mitt að fullu.
Málinu er þó ekki lokið. Kredit hefur ekki verið uppfært á öllum miðlum. Formleg krafa um greiðslur og bætur hefur verið send til framleiðanda. Frestur til viðbragða er nú liðinn og svar hefur ekki borist.
Glassriver er nú í eigu banka. Á sama tíma hef ég enn ekki fengið greitt fyrir mína vinnu og mitt framlag til verksins né bætur fyrir þann skaða sem málið hefur haft í för með sér. Sú staða vekur eðlilega spurningar um hvernig tryggt er að höfundar fái greitt þegar verkefni sem hljóta opinbert fjármagn eru framleidd.
Lögfræðikostnaður sem hefur fallið á mig vegna málsins nálgast nú þrjár milljónir króna. Næstu skref eru nú til skoðunar.
Persónulega vil ég þó beina orku minni að nýjum skapandi verkefnum og uppbyggilegu samstarfi á komandi misserum.



Comments