Hver fær að leikstýra Skaupinu aftur? Og hver fær það ekki?

Updated: Aug 30
Uppfært 30. ágúst 2026. RÚV tilkynnti í dag að Allan Sigurðsson og Hannes Þór Arason myndu leikstýra Áramótaskaupinu annað árið í röð. Skaupið sem þeir gerðu árið 2025 fékk framúrskarandi viðtökur: 90% svarenda í könnun Maskínu töldu það gott.
Mér finnst eðlilegt að leikstjórar sem ná góðum árangri fái annað tækifæri og óska þeim báðum til hamingju. En fréttin ýfir upp spurningar sem ég hef setið með í nokkur ár.
Mynstur
Áramótaskaupið 2022, sem ég leikstýrði og skrifaði ásamt fleirum, hlaut á þeim tíma bestu viðtökur frá upphafi mælinga Maskínu. Alls töldu 89% svarenda það gott. Skaupið var einnig valið skemmtiþáttur ársins á Edduverðlaununum.
Mynstrið meðal þeirra sem leikstýrðu sex vinsælustu Skaupunum samkvæmt mælingum Maskínu frá 2011 til 2025 er þetta:
Kristófer Dignus leikstýrði 2013 og fékk verkefnið aftur 2015.
Arnór Pálmi Arnarson leikstýrði 2017 og fékk verkefnið aftur 2018.
Reynir Lyngdal leikstýrði 2019 og hélt áfram 2020 og 2021.
Ég leikstýrði 2022 en hef ekki fengið verkefnið aftur.
Allan Sigurðsson og Hannes Þór Arason leikstýrðu 2025 og hafa nú verið ráðnir aftur fyrir 2026.
Allir karlkyns leikstjórarnir og leikstjórateymin í þessum hópi fengu annað tækifæri eftir góðan árangur. Eina konan í hópnum fékk það hins vegar ekki.

Ég sótti formlega um árin 2023, 2024 og 2025. Ég var aldrei boðuð í viðtal og fékk engin svör fyrstu tvö árin.
Ég hef ítrekað óskað eftir því að RÚV upplýsti mig um hvort eitthvað í vinnu minni við Skaupið hefði að mati stofnunarinnar mátt fara betur eða hvort eitthvað annað hefði staðið í vegi fyrir því að ég fengi verkefnið aftur. Ég hef ekki fengið efnisleg svör við þeim spurningum. Á fundum hef ég spurt stjórnendur RÚV beint hvort ég hefði átt að gera eitthvað öðruvísi. Þá hafa þeir hrist höfuðið en ekki getað nefnt nein dæmi.
Skýrslan til RÚV
Í lok framleiðslu Skaupsins 2022 sendi ég stjórnendum RÚV skriflega skýrslu um alvarlegar brotalamir í framleiðsluferlinu. Hún fjallaði meðal annars um mikinn þrýsting á tökur á Selfossi, skort á aðgangi að fjárhagsáætlun og samskiptarof tveggja framleiðenda við mig áður en tökum var lokið.
Spurningar mínar höfðu vaknað á miðju framleiðsluferlinu eftir fjölmiðlaumfjöllun um eignarhald framleiðslufyrirtækisins S800 og tengsl eigenda þess við nýja miðbæinn á Selfossi og Samherja.
(Frétt birtist upprunalega í Stundinni 25. nóvember 2022: https://heimildin.is/grein/16158/fyrirtaeki-kristjans-i-samherja-gerir-aramotaskaupid/)
Þegar umfjöllun um skýrsluna mína til stjórnenda RÚV birtist í fjölmiðlum í janúar 2023 var Sigurjón Kjartansson spurður hvers vegna Eiður Birgisson framleiðandi og Hjörtur Grétarsson aðstoðarleikstjóri og framleiðandi hefðu hætt samskiptum við mig áður en tökum var lokið. Sigurjón svaraði að þeir hefðu átt í „erfiðum samskiptum“ við mig. Það var ekki útskýrt nánar og engin dæmi voru nefnd. Ég gat því hvorki útskýrt mína hlið né varið mig gegn þessari lýsingu.
Þótt Sigurjón segðist sjálfur ekki hafa upplifað samskipti við mig sem erfið varð lýsing hans á samskiptum mínum við Eið og Hjört að mínu mati til þess að umræðan færðist frá alvarlegum athugasemdum mínum við framleiðslu Skaupsins yfir á persónu mína. Þar með hvarf kjarni málsins að mestu leyti úr umræðunni.
Ég sat hins vegar eftir með óútskýrðan stimpil um að ég væri „erfið“. Ég upplifi að sá stimpill hafi haft alvarleg áhrif á orðspor mitt og atvinnumöguleika í lítilli starfsgrein á litlu landi.
Í öllu samstarfi getur komið upp ágreiningur. Fagleg gagnrýni er hins vegar ekki sjálfkrafa það sama og ófagleg eða óeðlileg samskipti.
Ég hef enn ekki fengið að vita hvaða tilteknu orð, hegðun eða atvik voru svo „erfið“ að þau réttlættu að Eiður og Hjörtur hættu að tala við mig áður en tökum var lokið.
Tímalínan
Á fundum með stjórnendum RÚV hef ég spurt beint hvort ég hefði gert eitthvað rangt og hvort ég hefði átt að gera eitthvað öðruvísi. Þeir hafa hrist höfuðið en ekki getað nefnt nein dæmi. Ég get ekki sagt af hverju ákvörðunin um að hætta samskiptum við mig var tekin. En ég veit að tímalínan var þessi:
- Ég bað um aðgang að fjárhagsáætlun eftir að stjórnendur RÚV sögðu mér að ég ætti rétt á því.
– Í myndsímtali sem ég átti með Eiði og Sigurjóni öskraði Eiður á mig þegar ég bar upp beiðnina.
- Strax eftir símtalið bað Sigurjón mig afsökunar á framkomu Eiðs og sagði að sumir ættu erfitt með að vinna með kvenkyns stjórnendum.
– Daginn eftir tilkynnti Sigurjón mér, án fyrirvara, að Eiður og Hjörtur væru hættir samskiptum við mig.
Sigurjón hélt því fram opinberlega að S800 hefði ráðið mig til að leikstýra Skaupinu. Sú fullyrðing var röng og lét, að mínu mati, beiðni mína um aðgang að fjárhagsáætluninni líta óeðlilega út. RÚV staðfesti svo loks að það hefði valið mig sem leikstjóra áður en leitað var til framleiðenda.
Eftir þessa fjölmiðlaumræðu urðu skyndileg umskipti í mínu starfsumhverfi. Eftir um tveggja áratuga feril þar sem mér buðust reglulega verkefni hættu tilboð úr kvikmynda- og sjónvarpsbransanum skyndilega að berast.
Á sama tíma var ákveðið að flýta tökum á sjónvarpsseríunni Húsó án samráðs við mig. Enginn ágreiningur hafði komið upp í því samstarfi og ég fékk ekki að vita af ákvörðuninni fyrr en síðar. Ég get ekki fullyrt að sú ákvörðun hafi tengst umræðunni um Skaupið, en tímasetningin er sláandi.
Edduhátíðin
Eins og ég greini frá í kaflanum úr bókinni „Úr húsmæðraskóla“, sem hægt er að hlaða niður ókeypis hér neðar á síðunni, buðu framleiðendur S800 hvorki mér sem leikstjóra né höfundum Skaupsins á Edduhátíðina, þótt hefð sé fyrir því að framleiðendur bjóði leikstjóra og höfundum verksins.
Ég komst fyrst að því að Skaupið væri tilnefnt sem skemmtiefni ársins þegar þessi mynd af Eiði og Hirti með tilnefninguna birtist á samfélagsmiðlum.

Stjórnendur RÚV tryggðu síðar að höfundahópurinn fengi miða á athöfnina. Þeir virtu jafnframt ósk mína um að við þyrftum ekki að stíga á svið með framleiðendum S800 ef Skaupið ynni verðlaunin. Fyrir það var ég þeim þakklát.
Ég veit ekki hvort efnistökin í Skaupinu, skýrslan sem ég skrifaði, fjölmiðlaumfjöllunin, kyn mitt eða allt aðrar ástæður höfðu áhrif á síðari ákvarðanir RÚV um ráðningu leikstjóra Skaupsins. Ég hef ekki fengið skýringar á því hvers vegna ég fékk ekki annað tækifæri eftir velgengni fyrsta stóra leikstjórnarverkefnis míns í kvikmyndabransanum.
Spurningum ósvarað
Óþægilegar spurningar standa því enn eftir. Þær verða enn áleitnari þegar sama mynstur birtist aftur í ráðningu leikstjóra Skaupsins.
Fær kona í karlægri starfsgrein aðeins að vera með svo framarlega sem hún gengur ekki of langt í gagnrýni sinni og gerir ekki óþægilegar athugasemdir við valdamikla aðila?
Voru það mistök hjá mér að gera gott Skaup og greina stjórnendum RÚV samviskusamlega frá áhyggjum mínum af því hvernig farið væri með almannafé?
Ég er ekki fullkomin frekar en aðrir og get gert mistök. En ég vil geta lært af þeim.
Ef sagt er opinberlega að samskipti við mig hafi verið svo erfið að þau réttlættu að Eiður og Hjörtur hættu að tala við mig áður en tökum lauk tel ég eðlilegt að því fylgi nánari útskýring og skýr dæmi. Ef ekki er hægt að veita þá skýringu finnst mér rétt og sanngjarnt að Sigurjón dragi ummælin til baka.
Ég hef ákveðið að gera óbreyttan kafla úr fyrstu útgáfu bókar minnar Úr húsmæðraskóla aðgengilegan án endurgjalds. Þar rek ég atburðarásina í kringum gerð Áramótaskaupsins 2022, sem ég leikstýrði.
Hér má sækja óbreyttan kaflann Áramótaskaup sem PDF-skjal ásamt heimildaskrá, vísunum í gögn og tímalínu um Húsó og Skaupið:
Ég er jafnframt að undirbúa aðra útgáfu bókarinnar, Úr húsmæðraskóla í útlegð: Bak við tjöldin í íslenska kvikmyndabransanum, sem kemur út fljótlega.



Comments