top of page
Search

Eftir Íslensku sjónvarpsverðlaunin

Updated: Nov 7, 2025

Sjónvarpsserían Húsó var sigursæl á fyrstu Íslensku sjónvarpsverðlaununum og vann m.a. fyrir besta handrit og besta leikna sjónvarpsefnið fyrir árið 2024.



„...en kannski eitt það sérstakasta við þessi sjónvarpsverðlaun er það að, hvað... þau verða ekki í sjónvarpinu?“ – Símon Birgisson (Menningarvaktin, podkast).


Ljósakrónan á myndinni er eins og Disney-prinsessu kóróna!


Ég er afar þakklát fyrir viðurkenninguna, en ég hef aldrei haft jafn djúpa og nána tengingu við neitt verkefni, enda byggði það á minni eigin reynslu sem einstæð móðir sem var nemandi í skólanum árið 2020 eftir að ég kom úr meðferð.


Ragnar Eldur, sonur minn, 10 ára í Húsó.


Ótrúlega margt hefur breyst síðan þá… annað ekki.



Í upphafi skapandi verkefna hef ég lengi haft það fyrir hefð að setja saman manifesto með höfundum svo stefna hópsins sé samstillt og skýr.


Úr manifesto sem var skrifað fyrir sjónvarpsþáttaröðina Húsó:


  • Dramedy

  • Skoða, spyrja spurninga um: heimilið, fjölskyldur, kynin, fíknir, áföll, hefðir, feminisma, samskipti, sambönd

  • Ekki dark fíklasaga

  • Fyndið, satt, frumlegt, einlægt, hjartahlýtt

    Samstarf:

  • Trúnaður

  • Heiðarleiki

  • Höfundar standa saman


 

Ég vil tileinka verðlaunin sem ég fékk, ásamt öðrum, fyrir besta handrit ársins:

þjökuðum húsmæðrum,

þeim sem þjást vegna fíknivanda

og þeim sem létust langt fyrir aldur fram,

þeim sem hafa náð bata og eru til staðar,

þeim sem hafa upplifað hvers konar ofbeldi, einelti,

þöggun, útskúfun,

þeim sem lifa í útlegð

og þeim sem hafa ekki fengið að segja söguna sína.


Ég trúi ykkur.



 

Þögn gagnast gerendum, en kvelur þolendur.


Heimild: Menningarvaktin. (2025, 31. október). Magnús Jochum og Valur Grettisson #2 (Hlaðvarp). Podbean. https://menningarvaktin.podbean.com/e/magnus-jochum-og-valur-grettisson-2.

 

 

 
 
 

Comments


bottom of page