
Dóra Jóhannsdóttir (Dóra Jó)
er spunaleikkona, leikstjóri, höfundur, framleiðandi og fyrirlesari.
Hún útskrifaðist með BFA-gráðu í leiklist frá Listaháskóla Íslands árið 2006 og MA-gráðu í ritlist frá Háskóla Íslands árið 2025. Hún nam spuna og sketsaskrif við Upright Citizens Brigade (UCB) í New York og The Second City í Chicago.
Dóra er stofnandi Improv Ísland og Improv skólans.
Hún er creator og einn höfunda sjónvarpsseríunnar Húsó (e. The School of Housewives), undir dulnefninu Hekla Hólm. Serían hlaut flestar tilnefningar til Íslensku sjónvarpsverðlaunanna 2024 og vann fyrir Besta handrit og Besta leikna sjónvarpsefnið. Húsó var jafnframt tilnefnd til Nordic Series Script Award árið 2025.
Dóra hefur skrifað, leikstýrt og komið að framleiðslu auglýsinga og herferða fyrir m.a. Dag Rauða nefsins (fjáröflun fyrir UNICEF), VIRK, Geysi og Málbjörg.
Hún er einn höfunda sjónvarpsseríunnar Stella Blómkvist 2, sem var tilnefnd til Edduverðlauna fyrir Besta handrit.
Dóra var yfirhandritshöfundur Áramótaskaupsins 2017 og 2019 og leikstýrði Áramótaskaupinu árið 2022. Öll þessi ár hlaut Skaupið Edduverðlaunin fyrir Skemmtiþátt ársins. Árið 2022 fékk Skaupið, samkvæmt könnun Maskínu, bestu viðtökur almennings frá upphafi mælinga.
Árið 2025 gaf Dóra út bókina Úr húsmæðraskóla í útlegð – Bak við tjöldin í íslenska kvikmyndabransanum, sjálfsævisögulega fræðifrásögn sem byggir á heimildum og hennar eigin reynslu.
Hún hefur haldið fyrirlestra og vinnustofur hjá yfir 100 fyrirtækjum og stofnunum um hvernig hugmyndafræði spunans nýtist í lífi og starfi til að efla samskipti, samvinnu og sköpunarkraft.
Dóra stofnaði framleiðslufyrirtækið og bókaútgáfuna Djók Productions árið 2023.